flutningar...
www.bibbz.blogspot.com
Mig hefur alltaf langaðað geta sett inn myndir með bloggunum til að gera skemmtilegra..vona ég finni út úr því hér
engar fréttir góðar fréttir eða?
er með þétt planaða dagskrá þessa tvo frídaga...morgun er það þvottadagur, hitta önnu á kaffi, fara til baklæknis, og sofa aðeins lengur en vanalega! mér til mikillar gleði...fékk nebblega nýjan kodda í gær frá ástmanninum...rumskaði ekki einu sinni...!
Á fimmtudag fer ég svo og læt yfirdekkja gráu hárin...og svo að sækja Inguna mína á flugvöllinn...jamm og verður elskan hér í fjóra daga...gaman saman...dagskráin fyrir helgina er að klárast en get sagt að hún sé mega skemmtileg...
og ég sem er bara 28 og tala um baklækna og yfiredekkingu grárra hára...þá held ég það sé komið gott
Komin til köb...
Á Íslandi fórum við í brúðkaup til Fanneyjar og Auðunns...ferðalag um vestfirðina...enduðum í Æðey þar sem ég var alltaf í sveit þegar ég var lítil....það var æði að koma þangað aftur eftir átta ár....svo fórum við líka upp í sumarbústað og vorum þar í mega veðri...drukkum kaffi á prikinu...meira segja tvisvar...fórum á þingvelli...sáum gay-pride...borðuðum endalaust af góðum mat...dansaði villtan dans í bænum...fór í partý til heiðurs mér...og það sem mikilvægast var að knúsa vini og fjölskyldu....ómetanlegt....jafnt og ógleymanlegt....ég er næstum farina ð telja niður dagana í næstu ferð...
í köben er bara vinna vinna vinna þessa dagana þar sem það er mega mikið að gera...en hef nú alveg gefið mér smá tíma í að vera social...erum að verða búin að koma okkur alveg fyrir...vantar myndir uppá vegg...staðirnir eru samt komnir á hreint nú vantar bara bormaskínuna...og nýja ískápinn sem við ætlum að kaupa á morgun...vonandi...
Annars er ekkert meira merkilegt að frétta...nema það eru komnar tæplega 500 myndir inn á myndasíðuna mína...allt frá íslandinu fallega...jamm mikið af landsagsmyndum og spólið þið bara yfir þær ef þið eruð ekki svona náttúruunnendur eins og ég....eða þú skilur...annars segi ég bara over and out þar sem ég hef ekki neitt að segja....eða jú.....eigðu góða helgi...
Á morgun...
ég GET EKKI beðið...
Velkomin á S15
Hún...þá er ég að tala um S15 á eftir að verða voða kósý...er orðin milljón kalli kósyjari en hún var áður en við fluttum...íbúðin var máluð í bak og fyrir...þúsund þakkir Inga verkstjóri og Heiða aðstoðarkona...en á ennþá eftir að fá myndir upp á vegg og svona krútterí...það verður farið í það þegar Gnúsinn kemur heim...jamm kósý verður þetta...mér fannst samt ekki kósý áðan...
nú er ég að venjast nýja hverfinu...og er mikið af börnum svona í nágrenninu...allt í einu dinglaði dyrabjallan...ég svara aldrei ef ég á ekki von á neinum...þannig ég hélt bara áfram að gera eitthvað rosa spennandi...en dyrabjallan hélt áfram að dinglast og með svona misjöfnum töktum...þannig ég svaraði á endanum...það voru mega skruðningar í dyrasímanum þannig ég heyrði bara einhvern ungan dreng segja eitthvað...sem ég nota bene skildi ekki...hugsaði...pottþétt eitthvað dót á tombólu ves....NEJ TAK...rumdi ég og setti tólið á...þetta var greinilega ekki ásættanlegt fyrir tombólugaurinn því áfram var hamast á dyrabjöllunni...ég varð smá smeik...vissi ekki hvað ég átti alveg að gera...ætti ég að fara niður og segja honum að hann mætti ekki gera dyraat hjá mér...allavega...eftir að þetta var búið að standa yfir í fimm mínútur gafst ég upp....tók það litla sem ég er búin að setja af punti í gluggakistuna og opnaði gluggan til að sjá hver væri að dyngla...ég greip sökudólginn...litli ungi strákurinn var orðin að 13 ára stelpu...HEYrðu þú!!! Hættu nú að dingla á bjölluna mína...ég var mjög ákveðin í röddinni...kom sjálfri mér soldið á óvart...Stelpan: ok fyrirgefðu...en við vorum að leika okkur með bolta og hann endaði á svölunum hjá þér...huhummm...ok...VÁ hvað ég brosti...UNDSKYLD...sagði ég...lokaði glugganum...fór út á svalir og þar lá lítill bolti...tók hann upp og kastaði honum fagmannlega til krakkanna...sem nota bene höfðu þurft að stoppa leik í góðar tíu mín út af bibbu brjál...en nú er ég klárlega stimpluð nýji fúli nágranninn...eða kannski ekki...mér er svo sem sama...held að þau hafi bara fýlað þetta...en allavega þá er ég að fíla þetta bara hérna á VESterbro...
kem núna heim eftir 29 daga og ég get ekki beðið...akkúrat núna er ég með mega leiða á vinnunni minni...þarf rosa að komast í frí í smá tíma og líka bara knúsa alla mína á íslandinu góða....Ingibjörg það er orðið áliðið...
hafiði það gott elskurnar mínar...kossar og knús af S15
í fréttum er þetta helst!
uppáhalds...
Jibbí...
Núna...
Mér finnst...
....ég eiga Gullmann....búin að vita það í langan tíma svo sem það er ekkert nýtt....en hann verður bara verðmætari með hverjum degi....allavega....afmælisdagurinn var æði....vaknaði áður en GullmAðuRinn fór í skólann...hann gaf mér pakka...ég hafði óskað mér skó eða kjól...bara eitthvað svona lekkert...hann skaut mig gjörsamlega í kaf....ég opna pakkann...bakvið papírinn var kassinn utan af kaffikönnunni okkar...aha...hann er að plata...svo opna ég kassan og kíki inn í....horfði inní kassan í fimm mínutur með kökk í hálsinum og kom ekki upp orði....það sem blasti við mér var....kassi sem á stóð...CANON EOS 400D...þetta getur ekki verið hugsaði ég....kökkurinn varð soldið stór...ég fór samt ekki að grenja enda orðin 28 ára....FullOrðin...ég tók Canon kassan út úr hinum kassanum...opnaði hann...jú þetta var sko myndó....ég knúsaði Gullmanninn endalaust...ég hef aldrei verið svona hissa á ævinni...mininr mig...er 28 gefiði mér séns...minnið aðeins farið kannski að ..huhumm slappast...en þetta er eitthvað sem ég sagði við hann fyrir löngu löngu að mig langaði þegar ég væri búin með ÓG..... BA þá langaði mig að fara á ljósmyndanámskeið og svona skemmtilegt því það hefði mig langað í mörg ár...svo gaf hann mér þetta og sagði lika nú átt þú að fara að hafa gaman í köben...Þetta var sko bara byrjunin a´deginum...
svo fórum við og keyptum minniskort í myndó....fórum svo á ljósmyndasýningu í kirkjuni á Nikolaja plads....rosa skemmtó...svo kaffibolli niðrí bæ...hitti tengdó síðan í rauðvínsglasi hér rétt hjá...hjóluðum svo upp í loppen og borðuð æðislegan mat í spiseloppen...svo fórum við til Bringu...drukkum rauðvín og spiluðum jungel speed...svo á Mcklud...og enduðum á sommersted...það var gaman saman...
nú er síðasta læruhelgin gengin í garð...SíðAsta...í svo langannnnnnn....tíma....jess....næstu helgi mun ég sofa út og leika við alla sem ég get...en annars er ekkert meira að frétta....bara æðislegur afmælisdagur...Og takk fyrir mig allir...núþarf ég að fara að læra...
